Árakur 23, 210 Garðabær
164.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
6 herb.
248 m2
164.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2007
Brunabótamat
105.830.000
Fasteignamat
156.100.000

SUNNA FASTEIGNASALA  og Þóra Birgisdóttir, lögg. fasteignasali, kynna vandaða eign í einkasölu; Árakur 23,  248.9 fm 6 herb. raðhús á tveimur hæðum.
***  Sækja söluyfirlit ***
Einstaklega fjölskylduvæn og vel skipulögð eign í Akrahverfinu í Garðabæ.


Íbúðin er skráð 219,5  fm. og bílskúrinn 29,4 fm. birt heildarstærð 248.9 fm. 

Eignin skiptist í: Forstofu/hol, 4 svefnherbergi, 2 stofur, eldhús og 2 baðherbergi, sjónvarpshol og bílskúr sem innangengt er í. 
Nánari lýsing; Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum. Úr holi við forstofu er gengið inn í svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr og opið alrými í framhaldi af því.
Herbergi með glugga í norður og fataskápum (merkt geymsla á teikningu).
Baðherbergi á hæðinni er flísalagt í hólf og gólf, flísar úr náttúrusteini á gólfi, góð sturtuaðstaða og innrétting.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu alrými með góðum gluggum mót suðri. Eldhús er nýlega endurnýjað á vandaðan hátt með hvítri innréttingu, Quartz steini á borðplötum og góðu vinnu- og skúffuplássi, eyja skilur að eldhúsið og borðstofuna. Innrétting er frá HTH, eldhústæki eru vönduð tæki frá Siemens.
Stofa, rúmgóð borðstofa er í framhaldi af eldhúsinu. Stofan er rúmgóð með gólfsíðum gluggum, frá henni er gengið út á afgirta hellulagða verönd og skjólgóðan garð mót suðri.
Efri hæð: Á hæðinni eru 3 stór svefnherbergi en þau gætu verið 4 (með því að minnka sjónvarshol).
Hjónaherbergi er rúmgott (26.3 fm2) með sér fataherbergi / fataskápum, útgengt er á suð-austur svalir frá hjónaherberginu.
Tvö barnaherbergi á efri hæð með parketi á gólfum, herbergið næst sjónvarspholinu er 20 fm en hitt 15,3 fm. 
Á hæðinni er stórt og rúmgott baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, þar er hvortveggja baðkar í yfirstærð og góð sturta, innrétting fyrir handlaug.
Sjónvarpsherbergið er rúmgott og möguleiki að breyta þessu rými í fimmta svefnherbergið. Út frá sjónvarpsrýminu er gengið út á stórar svalir
Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. 

Innangengt er í rúmgóðan bílskúr (29,4 fm) frá forstofu, hann er með heitu og köldu vatni og góðum vaski,og nýtist vel sem bæði geymslurými og bílskúr.

Þetta er vel staðsett eign í hinu vinsæla Akrahverfi í Garðabænum, stutt er í skóla, leikskóla og íþrótta- og tómstundastarfsemi, nýlega verslun Krónunnar og aðra þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir, lögg. fasteignasali, í síma 7772882, tölvupóstur [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.