Rökkvatjörn 2 íbúð 0104, 113 Reykjavík (Grafarholt)
57.073.568 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
74 m2
57.073.568
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
25.100.000

Rökkvatjörn 2-4 og Skyggnisbraut 17 eru byggð sem hluti af verkefni Reykjavíkurborgar um hagkvæmt húsnæði ætlað fyrstu kaupendum og kaupendum undir 40 ára.
Sjá nánari upplýsingar á Facebook síða verkefnisins um verkefnið og  heimasíðu byggingaraðilans www.urdarsel.is

Upplýsingar um skoðun er hægt að fá hjá Fasteignasala í s. 777-2882 eða [email protected]
 
Húsin eru í Svansvottunarferli þar sem áhersla er lögð á vistvænni byggingarefni. Húsin eru hvert með miðlægu loftræstikerfi sem tryggir betri loftræstingu og orkunýtingu.

Íbúð 01-0104 er þriggja herbergja íbúð, skráð 74,8 fm., þar af er geymsla 5,9. Hennir fylgir stæði í bílageymslu.
Lýsing íbúða;
Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar með vönduðu harðparket gólfefni (QuickStep) og innréttingum frá Egger.
Baðherbergi er flísalagt með skáp undir handlaug, salerni og sturtuaðstöðu.
Í eldhúsi er innrétting með spanhelluborði ásamt gufugleypi - tæki frá Rafha, sjá nánar í byggingarlýsingu.
Fataskápur/ar eru hjónaherbergi.
Nánari lýsing á efnisvali og tækjum er að finna í byggingarlýsingu fyrir húsið www.urdarsel.is
Teikningar fyrir allt húsið er að finna hér www.urdarsel.is
Ítarlegri upplýsingar er að finna á vef byggingaraðilans www.urdarsel.is
Skjalagerð vegna kaupa annast Sunna fasteignasala ehf.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.